Vogaskóli útskriftarárgangur 1986

Velkomin á vef útskriftarárgangsins 1986

05.05.2007 23:16:58 / Særún

Fyrir ári síðan.....

var hrikalega gaman í partýi með ykkur öllum. Sama góða veðrið í kvöld og var þá. Og hvað eru ekki bara 4 ár í næsta hitting??? Ég er loksins komin með myndasíðu inn á bloggið mitt og auðvitað eru myndirnar frá deginum okkar komnar þar inn. Þær eru auðvitað ósköp svipaðar öðrum myndum en endilega kíkið við og kvittið líka. Verum svo bara endilega í sambandi hér og höldum síðunni við. Sé að hér kíkja nokkrir við öðru hvoru og bara gaman að halda því áfram.

Sjáumst.


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 23:21:10 / annak

Nýtt útlit

Æ fyrst eg leit við hérna þá ákvaðégað best væri að hressa aðeins upp á útlitið og losa okkur við brúna litinn sem minnti svo átakanlega á teppin í Vogaskóla. Nýja byggingin er líka risin og eralveg að verða klár.

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 14:31:48 / annak

Myndir frá Ástu

Það er kominn tengill hér til hliðar á myndir sem hún Ásta tók á endurfundunum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 13:20:39 / annak

Loksins!


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.06.2006 20:29:20 / Særún

Orðinn Þróttari aftur

Hæ hæ

Ég mátti til með að skrifa ykkur línu hér inn því einhverjir eru greinilega enn að kíkja hingað inn. Og ekki hætta því alveg strax.

Það sem ég vildi nú bara segja ykkur er það að ég er sko að koma í hverfið OKKAR aftur. Búin að selja hér í Búðargerðinu og keypti íbúð í Gnoðarvogi 54. Svo nú er bara okkar gamli góði skóli hinu megin við götuna. Ég held að það hafi nú enginn af okkur búið í þessu húsi en einhverjir á þessum slóðum. Þetta gerðist nú allt frekar hratt þó einhverjar raddir séu uppi um að lægð sé á fasteignamarkaðnum því það er mánuður á morgun síðan fasteignasalinn kom og skoðaði íbúðin mína.Og ég fékk lyklana í dag og verð þarna meira og minna í málningarvinnu næstu daga.

Hlakka til að hitta ykkur öll á förnum vegi næstu árin og svo auðvitað eftir einhver ár í jafngóðu partýi og síðast.

Kveðja Særún


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.06.2006 00:32:19 / annak

Gjöf til Vogaskóla

Við skólaslit í Vogaskóla var afhent þetta fína sett með hljóðfærum sem duga fyrir heilann bekk. Það var keypt fyrir þann óvænta afgang sem varð af endurfundunum. Nú er bara að sjá hvort Vogaskóli mæti ekki á næstu Skrekk-keppni með mikið áslattar-undur.

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 20:51:49 / annak

Rúsínan í pylsuendanum

Hann Knútur kom með videóspólu með broti af bílskúrstónleikunum frægu á Endurfundina. Svo óheppilega vildi til að salurinn átti ekki videotæki heldur bara DVD svo ekki var hægt að sýna gripinn. Ég lofaði því þó að koma þessu á stafrænt form og nú er allt að verða klappað og klárt. Eftir nokkra daga getið þið barið augum aftur þessi ódauðlegu augnablik með hljómsveitunum Sexy og Svefnpurkum. Þangað til eru hér til hliðar undir heitinu tónleikar nokkrar myndir sem þið getið glaðst yfir. Stay tuned!

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 09:50:16 / annak

Sjáið allt myndarlega fólkið á myndunum!

Ég setti inn myndir frá laugardeginum, hlekkurinn heitir 060506. Ég var ekki alveg nógu skipulögð í myndatökunum svo það vantar helling. Þið sem tókuð líka myndir plís deilið þeim með okkur hér á síðunni, ég get sett þær inn fyrir ykkur eða a.m.k. aðstoðað við að koma þeim online.

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 11:24:01 / Særún

Takk fyrir síðast!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Þetta var náttúrlega bara snilld í gær og úthald í að minnsta kosti 12 tíma er bara gaman. Við förum svo bara í það á næstunni að koma myndum frá gleðinni hingað inn svo þeir óheppnu sem ekki komust með fái allavega að sjá hvað var gaman.

Nú er um að gera að halda áfram að skrifa og halda blogginu lifandi.

Takk fyrir skemmtunina!!!


» 24 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 11:42:54 / annak

6. maí 2006 kl. 17:30

Þá er komið að því! Við ætlum að hittast laugardaginn 6. maí, kl. 17:30 á fótboltavellinum við barnaskólann. (Við byggingarsvæðið, Skeiðarvogur-Karfavogur). Þar mun dagskráin hefjast og berast svo um víðann völl. Klæðnaður: frjálslegur en snyrtilegur. Það er sjálfsagt að koma með einhverjar smá veigar til upphitunar en stefnan verður svo tekin á stað þar sem seldar eru vínveitingar svo ekki gleyma kortinu. Herlegheitin munu kosta 4200 kr., innifalið er fordrykkur og Matur auk þess sem gert er ráð fyrir að bjóða 1-2 gestum (kennarar). Vinsamlegast leggið inn á eftirfarandi reikning: Banki: 1150, Hb: 05, Reikningur nr: 415141, kt: 091070-5109. Best er ef fólk gefur upp eigin kennitölu með innleggi, þá vitum við hverjir hafa borgað. Sjáumst hress!

» 11 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 14:57:41 / annak

Ég vissi það alltaf!

Nú er búið að reikna það út að Vogaskóli sé nafli borgarinnar. Við hefðum nú getað sagt þeim það fyrir löngu síðan.

Og hér er svo mynd af sjálfri miðjunni og gestaþraut í leiðinni. Finnið húsið ykkar!

» 12 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 09:36:38 / annak

Mæting

Þá er komið að formlegri talningu enda nálgast dagurinn óðfluga. Þið sem ætlið að mæta vinsamlegast staðfestið hér á þessum þræði.

» 27 hafa sagt sína skoðun

02.04.2006 23:18:14 / Særún

tónlistin...

Halló allir saman. Við í nefndinni vorum að tala um tónlistina frá þessum tíma. Okkar draumur er að setja saman á disk slatta af þeim lögum sem við hlustuðum á í gamla daga. Svo nú er bara um að gera að setja inn óskalög, fyrr en síðar svo hægt sé að byrja þessa vinnu. Hvað vorum við að hlusta á? Það var alla vega engin Silvía Nótt þá þetta var bara eðal tónlist, Baraflokkurinn, Fine Young Cannibals og fleiri góðir. Látið okkur endilega  vita hvað þið viljið hafa í partýi aldarinnar sem verður náttúrlega bara snilld. Frábært að fá ykkur í umræðuna sem hafið verið að koma inn síðustu daga og nú er bannað að vera bara lesandi, látið heyra í ykkur! Hlakka alveg svakalega til að hitta ykkur og heyra hvað allir eru að gera í dag. Hvað er Magga til dæmis að bardúsa í London og Halldór Óskar í Þýskalandi?


» 54 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 23:37:02 / annak

Upprifjun

Minningabókin rúllar áfram, það er hreinlega erfitt að þurfa að velja úr og gera upp á milli allra þessara ódauðlegu meistaraverka. Legg mig líka alla fram við að gleyma ekki að setja inn nýja síðu daglega. Mér líður eins og fólkinu í LOST sem verður að slá inn tölurnar í tölvuna. Var annars að renna yfir bókina „Bekkurinn minn“ þar fíla allir strákarnir Queen en Magga og Eydís segjast halda mest upp á Starson45. Hjá einhverjum stelpum kemur líka dúettinn „Þú og ég“ sterkur inn. Jamm svona var það þá. Fór á bókamarkaðinn í Perlunni um daginn og fannst ég hafa fundið sannkallaðan dýrgrip þegar ég rakst á „Bryggskipið Bláliljan“. Það var góð bók! Keypti hana med det samme og ætla að gera hana að skyldulesningu hjá næstu kynslóð. Munið þið líka eftir bók sem hún Sigrún las fyrir okkur með sögum úr vesturbænum? Hvað hét hún aftur? Og um strákinn sem var smali og lokaðist inn í helli?

» 51 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 10:49:45 / annak

Viku afmæli

Síðan hefur nú verið opin í rúma viku og hér koma í leitirnar týndir sauðir hver á eftir öðrum. Frábært að geta allt í einu spjallað daglega við gömlu skólafélagana á ný. Haldið bara áfram að tjá ykkur, allar játningar á gömlum skammarstrikum vel þegnar, hér hefur nú þegar verið ljóstrað upp ýmsum leyndarmálum. Ekki seinna vænna að gera hreint fyrir sínum dyrum. Svo að lokum ferfalt húrra fyrir Þórunni Helgu sem er fyrst til að skrifa í gestabókina. Húrra! Húrra! Húrra! Húrra!

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2